Inicio Top Música Bad Bunny Música Cristiana Taylor Swift Ed Sheeran Luis Fonsi Ozuna Daddy Yankee J Balvin Maluma DMCA

Letra de 'Níðhöggur (feat. Baldvin Kristinn Baldvinsson)' de Skálmöld - Escucha y canta en New Musica

Varios-artistas

Ultra Music Festival 2023

Varios-artistas

00s Latin Music

Varios-artistas

Mood Booster

Varios-artistas

Musica Variada De Todo Un Poco

Artist profile picture

Níðhöggur (feat. Baldvin Kristinn Baldvinsson)

Skálmöld

Canciones

Kveður vísu draumadís
Dagur rís í frosnum móanum
Króknar sálir kveikja bál
Kneyfa skal og syngja með spóanum

Þegar hitinn þíðir vit
Þykkur biti fyllir magana
Hér á bóga báða nóg
Breiður skógur umlykur hagana

Ýviður er í boga bestur
Beittar tálgum eiturörvar
Níðhöggur, sá grimmi gestur
Gefur eftir, flýr og hörfar

Dregin erum, fuglinn fer
Fram hjá sveru urðargrjótunum
Gegnum stríða hörkuhríð
Höfum skíðin bundin á fótunum

Öllu gleymum, horfum heim
Hann þar sveimar einn með skörfunum
Bogar svigna, lækur lygn
Látum rigna yfir hann örvunum

Flýgur inn með fuglager
Feigðareldur bjartur logar
Grandað enginn getur mér
Geiga allir þínir bogar

Skíðar yfir skaraband
Skalt þú núna deyja, ullur
Dalir þínir draumaland
Dauðinn verður tregafullur

Skörp er lund og skelfur grund
Skíðum undir klakaflekanum
Víð þar brjótum væng og fót
Vinir skjóta hart að drekanum

Óðum drekans eyðist þrek
Undir tekur fjalls í sölunum
Heyrist gnýr og höggur flýr
Hrakti ýr hann burtu úr dölunum

Ýr í dölunum

Inicio Top Música Bad Bunny Música Cristiana Taylor Swift Ed Sheeran Luis Fonsi Ozuna Daddy Yankee J Balvin Maluma DMCA